Þýskalandsmeistarar Bayern München eru áfram með fullt hús á toppi þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu kvenna eftir stórsigur á Hoffenheim í dag, 5:1.
Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Bayern lék allan leikinn í hjarta varnarinnar en Bayern er með 9 stig eftir þrjár umferðir og er eina liðið sem hefur unnið alla sína leiki. Hin Íslendingaliðin, Wolfsburg og Leverkusen, eru með 7 stig, sem og Eintracht Frankfurt.
Daninn Pernille Harder var í sviðsljósinu í dag en hún skoraði þrennu í leiknum. Georgia Stanway skoraði fyrsta mark Bayern og Sydney Lohmann það fimmta og síðasta.