Davíð Snær Jóhannsson skoraði langþráð mark fyrir Aalesund er liðið fékk skell gegn Vålerenga á útivelli í norsku B-deildinni í fótbolta í kvöld, 4:1.
Davíð skoraði markið á 62. mínútu er hann minnkaði muninn í 2:1. Því miður fyrir Davíð og félaga dugði það skammt.
Markið er það fyrsta sem Davíð skorar í tæpan mánuð og er annað markið hans á tímabilinu. Hann lék allan leikinn með gestunum.
Vålerenga er með 12 stiga forskot á toppnum eftir 24 leiki. Aalesund er í 13. sæti af 16 liðum með 25 stig, einu stigi fyrir ofan fallumspil.