Noah hafði betur gegn ríkjandi meisturum Pyunik á heimavelli sínum, 2:0, í efstu deild armenska fótboltans í dag.
Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði Noah og hann lagði upp fyrra markið á 47. mínútu. Lék hann allan leikinn með liðinu.
Noah er í fimmta sæti deildarinnar með tíu stig eftir fimm leiki, sjö stigum á eftir toppliði Van.
Noah mætir Víkingi á heimavelli sínum í Sambandsdeildinni 28. nóvember næstkomandi.