Real Madrid hafði betur gegn Alaves, 3:2, í sjöundu umferð spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld.
Lucas Vazquez kom Real yfir eftir 55 sekúndur og Kylian Mbappé bætti við öðru markinu á 40. mínútu. Franska stórstjarnan hefur skorað í fimm leikjum í röð.
Staðan í hálfleik var 2:0 en Brasilíumaðurinn Rodrygo gerði þriðja mark Real á 48. mínútu.
Alaves gafst ekki upp því þeir Carlos Benavidez og Kike Garcia skoruðu á 85. og 86. mínútu og minnkuðu muninn í eitt mark. Nær komst Alaves hins vegar ekki.
Real er í öðru sæti með 17 stig, einu stigi á eftir Barcelona sem á leik til góða. Alaves er í áttunda sæti með tíu stig.