Barcelona vann sjöunda leik sinn í röð í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu karla þegar liðið lagði Getafe að velli, 1:0, í Barcelona í kvöld.
Börsungar eru því enn með fullt hús stiga, 21, eftir sjö leiki í deildinni og eru fjórum stigum fyrir ofan erkifjendurna í Real Madríd, sem er með 17 stig í öðru sæti.
Robert Lewandowski skoraði sigurmarkið í kvöld á 19. mínútu.
Pólski markahrókurinn fer einkar vel af stað á tímabilinu þar sem hann er kominn með sjö mörk í sjö leikjum.