Kristall Máni Ingason kom inn á sem varamaður og tryggði Sønderjyske sigur í danska bikarnum í dag. Það tók Kristal ekki nema tvær mínútur að setja mark sitt á leikinn.
2. deildarliðið Ishøj komst óvænt yfir í fyrri hálfleik og staðan var 1:0 í hálfleik. Sønderjyske jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks en Kristall kom inn af bekknum á 64. mínútu og kom Sønderjyske í 2:1 á þeirri 66.
Mads Agger kom Sønderjyske í 3:1 á 88. mínútu áður en heimaliðið minnkaði muninn í 3:2. Fleiri urðu mörkin ekki og Sønderjyske verður því í pottinum þegar dregið verður í fjórðu umferð.