Franski varnarmaðurinn Raphael Varane hefur tilkynnt að hann sé hættur knattspyrnuiðkun. Varane er fjórfaldur Evrópumeistari með Real Madrid og varð einnig heimsmeistari með Frökkum árið 2018.
Varane er 31 ára gamall og var einn besti varnarmaður heims. Frakkinn gekk til liðs við ítalska liðið Como í sumar frá Manchester United en náði einungis að spila einn leik vegna meiðsla á hné.
„Þeir segja að allt gott taki enda,“ er byrjunin á yfirlýsingu Varane á Instagram þar sem varnarmaðurinn sterki fer yfir ferilinn og ákvörðunina. Yfirlýsinguna má sjá hér fyrir neðan.