Stuðningsmaður spænska knattspyrnufélagsins Mallorca hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir kynþáttaníð.
Stuðningsmaðurinn var fundinn sekur fyrir kynþáttaníð í garð brasilísku stjörnunnar Vini Jr. hjá Real Madrid og Samu Chukwueze, sem lék með Villarreal en er nú hjá AC Milan.
Átti níðið sér stað á heimavelli Mallorca-liðsins á síðustu leiktíð. Auk eins árs fangelsisvistar var stuðningsmaðurinn einnig dæmdur í þriggja ára bann frá því að mæta á knattspyrnuleiki á Spáni.