Marc Bernal hefur undirritað nýjan samning við Barcelona. Samningurinn er til fimm ára og 500 milljónir evra þarf til að kaupa hann frá félaginu.
Bernal er enn einn leikmaðurinn úr unglingastarfi La Masia-akademíunnar en hann lék þrjá leiki fyrir aðalliðið í upphafi tímabils áður en hann sleit krossband í byrjun september.
Börsungar hafa þó gríðarlega trú á drengnum sem er einungis sautján ára gamall. Nýi samningurinn hljóðar upp á mikla launahækkun og tekur gildi á átján ára afmæli Bernal í maí á næsta ári.