Dramatískt sigurmark Ísaks

Ísak Bergmann Jóhannesson var hetjan.
Ísak Bergmann Jóhannesson var hetjan. Ljósmynd/Alex Nicodim

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var hetja Düsseldorf er liðið vann dramatískan útisigur á Greuther Fürth í B-deild Þýskalands í fótbolta í kvöld.

Ísak lék allan leikinn fyrir Düsseldorf og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma úr vítaspyrnu. Valgeir Lunddal Friðriksson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Düsseldorf og lék fyrstu 80 mínúturnar.

Düsseldorf er í toppsætinu með 17 stig, þremur stigum á undan Karlsruher sem á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert