Orri Steinn Óskarsson skoraði sín fyrstu mörk í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gærkvöldi er hann gerði tvö mörk í 3:0-sigri Real Sociedad á Valencia.
Orri kom inn á sem varamaður eftir um klukkutíma leik og nýtti tímann á vellinum afar vel.
Framherjinn er greinilega vinsæll hjá nýju liði og vildu allir liðsfélagar íslenska landsliðsmannsins fagna með honum í leikslok, eins og sjá má hér fyrir neðan.