Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö mörk fyrir Real Sociedad í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær en Imanol Alguacil, knattspyrnustjóri liðsins, vildi samt meira frá honum.
„Ef hann hefði verið ákveðnari hefði hann skorað þrennu. Í dag var hans tími til þess að skora og ég vona að hann haldi því áfram,“ sagði Alguacil eftir leikinn.
Orri kom inn á á 61. mínútu og skoraði fyrra markið á 80. mínútu og seinna á annarri mínútu uppbótartímans.
Þetta voru fyrstu mörk Orra fyrir spænska liðið í deildinni en hann kom til félagsins frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku í sumar.