Sædís Rún Heiðarsdóttir og stöllur í Vålerenga sigruðu Brann, 3:1, í undanúrslitum í norsku bikarkeppninni og mæta Rosenborg í úrslitaleiknum.
Selma Sól Magnúsdóttir leikur með Rosenborg en liðið tryggði sig í úrslitaleikinn með 3:1-sigri á Røa í gær.
https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2024/09/28/selma_i_bikarurslit/
Sædís var í byrjunarliði Vålerenga og spilaði 75 mínútur í sigrinum.
Vålerenga lenti undir í upphfi leiks en jafnaði metin og var svo 2:1 yfir í hálfleik. Karina Sævik skoraði svo þriðja mark liðsins á 55. mínútu og niðurstaðan 3:1.
Úrslitaleikurinn er svo sunnudaginn 24. nóvember.