Bar Rodri saman við Messi

Lionel Messi í leik með argentíska landsliðinu.
Lionel Messi í leik með argentíska landsliðinu. AFP/Juan Mabromata

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, bar mikilvægi Rodri saman við Messi en báðir voru þeir lykilmenn fyrir Guardiola er Man. City og Barcelona unnu þrennuna.

„Við erum án Rodri, við söknum hans, besti leikmaður í heimi. Ímyndaðu þér tímann minn hjá Barcelona, Messi var besti leikmaðurinn, að spila þá án Messi? Heldur þú að við hefðum unnið þrennuna? Ég held ekki,“ sagði Guardiola.

Rodri er með slitið krossband og mun ekki leika meira með Man. City á þessu keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka