Róbert og félagar áfram í umspilinu

Róbert Orri Þorkelsson leikur í vörn Kongsvinger.
Róbert Orri Þorkelsson leikur í vörn Kongsvinger. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Róbert Orri Þorkelsson og félagar í Kongsvinger eru komnir áfram í umspilinu um sæti í norsku úrvalsdeildinni eftir sigur gegn Egersund, 2:1, í dag.

Jesper Andreas Grundt skoraði bæði mörk Kongsvinger en Chris Sleveland skoraði mark Egersund. Róbert Orri spilaði allan leikinn fyrir Kongsvinger.

Kongsvinger mætir Moss næst sem hafnaði í þriðja sæti norsku B-deildarinnar. Sigurvegarinn í þeirri viðureign mætir liðinu sem hafnar í þriðja neðsta sætinu í norsku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka