Sveindís kom af bekknum og skoraði tvö

Sveindís Jane Jónsdóttir gerði gæfumuninn í dag.
Sveindís Jane Jónsdóttir gerði gæfumuninn í dag. mbl.is/Hákon Pálsson

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði tvívegis þegar Wolfsburg vann þriggja marka útisigur á Mainz í sextán liða úrslitum þýska bikarsins í fótbolta í dag, 4:1.

Kara Bathmann kom Mainz óvænt yfir á 30. mínútu og virtist Wolfsburg liðið eiga fá svör við spilamennsku Mainz í dag.

Sveindís byrjaði á varamannabekk Wolfsburg en var skipt inná á 72. mínútu.

Á 82. mínútu jafnaði Lineth Beerensteyn metin fyrir Wolfsburg áður en Sveindís kom liðinu yfir með marki á 85. mínútu.

Fenna Kalma skoraði þriðja mark gestanna á 89. mínútu og Sveindís skoraði síðan fjórða markið á þriðju mínútu uppbótartíma.

Wolfsburg er því komið áfram í átta liða úrslit þýska bikarsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka