Barcelona fékk skell gegn Las Palmas, 2:1, í spænsku efstu deild karla í knattspyrnu í Barcelona í dag.
Börsungar hafa nú ekki unnið í þremur deildarleikjum í röð en liðið er á toppnum með 34 stig, fjórum stigum meira en Spánarmeistarar Real Madrid sem eiga þó tvo leiki til góða.
Sandro Ramirez kom Las Palmas yfir á 49. mínútu en Raphinha jafnaði metin á 61. mínútu, 1:1.
Sigurmark Las Palmas kom aðeins sex mínútum á eftir jöfnunarmarki Börsunga en það skoraði Fabio Silva, 2:1.