Jafnt í stórslagnum í Þýskalandi

Jamal Musiala og Julian Ryerson í baráttunni.
Jamal Musiala og Julian Ryerson í baráttunni. AFP/Ina Fassbender

Borussia Dortmund og Bayern München skildu jöfn, 1:1, í efstu deild þýska fótboltans í Dortmund í kvöld.

Bayern situr áfram á toppi deildarinnar með 30 stig. Dortmund situr í fimmta sæti með 20 stig.

Englendingurinn Jamie Gittens kom Dortmund yfir á 27. mínútu. Skömmu síðar þurfti stjarna Bayern, Harry Kane, að fara af velli vegna meiðsla.

Allt stefndi í sigur Dortmund þar til á 85. mínútu en þá jafnaði Jamal Musiala metin fyrir Bayern. Lokaniðurstaðan var því 1:1-jafntefli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka