Missir bílprófið fyrir að keyra undir áhrifum áfengis

Alphonso Davies.
Alphonso Davies. AFP/Franck Fife

Knattspyrnumaðurinn Alphonso Davies, leikmaður Bayern München og kanadíska landsliðsins, missir bílprófið í mánuð eftir að hafa keyrt undir áhrifum áfengis. 

The Athletic greinir frá en í frétt miðilsins kemur fram að Davies hafi einnig fengið sekt og tvo punkta á ökuskírteinið. 

Davies var stöðvaður af lögreglunni á fimmtudagsmorgun og látinn blása en hann með mældist með 0,6 prómill en samkvæmt lögum í Þýskalandi er allt yfir 0,5 prómill sekt og að minnsta kosti tveir punktar á ökuskírteinið.  

Davies var ekki handtekinn. Bayern neitaði að tjá sig þegar The Athletic hafði samband en ætlar ekki að gera neitt frekar í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka