Gunnar Nelson vann til gullverðlauna í sínum flokki á jiu-jitsu móti í Kalíforníu Bandaríkjunum í gærkvöldi. Um er að ræða sjálfsvarnaríþrótt sem svipar til júdó.
Gunnar vann fimm glímur í leið sinni að gullinu. Í úrslitunum glímdi hann við Bruno Alves sem hlaut silfurverðlaun á síðasta heimsmeistaramóti. Gunnar sigraði Alves á hengingartaki eftir þriggja mínútna viðureign.