Jórunn Harðardóttir sló eigið Íslandsmet í loftskammbyssu á heimsbikarmóti í München í Þýskalandi í dag. Jórunn fékk þá 560 stig og bætti metið um þrjú stig.
Hún hafnaði í 78. sæti af 122 keppendum. Fyrra met hennar var 557 stig sem hún setti á Reykjavíkurleikunum í byrjun árs.
Jórunn er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni.