Serena dregur sig úr keppni vegna meiðsla

Serena Williams.
Serena Williams. AFP

Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams er hætt keppni á opna franska meistaramótinu í tennis sem stendur nú sem hæst.

Williams átti að mæta Mariu Sharapovu í 16-manna úrslitunum í dag en ekkert verður að því þar sem Williams er hætt keppni vegna meiðsla í hendi.

Sharapova, sem ekki hefur tekist að vinna Williams á tennisvellinum síðan árið 2004, er þar með komin í átta manna úrslitin þar sem hún mætir annað hvort Garbine Muguruza eða Lesia Tsurenko.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert