Kanada aftur í úrslit

Thomas Chabot skorar fimmta mark Kanada.
Thomas Chabot skorar fimmta mark Kanada. AFP

Kanada leikur til úrslita á HM í íshokkíi annað árið í röð eftir 5:1-sigur á Tékklandi í undanúrslitum í Slóvakíu í kvöld. 

Mark Stone skoraði eina mark fyrsta leikhlutans, en þeir Darnell Nurse og Pierre-Luc Dubois bættu við mörkum í öðrum leikhluta.

Kyle Turris og Thomas Chabot bættu við fjórða og fimmta marki Kanada í þriðja leikhluta, áður en Tomas Zohorna minnkaði muninn fyrir Tékkland undir lokin. 

Kanada mætir Finnlandi í úrslitum á morgun, en Finnar unnu óvæntan sigur á Rússum í fyrri undanúrslitaleiknum í dag. Kanada lék til úrslita á síðasta ári gegn Bandaríkjunum en tapaði þá 1:4. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert