Ásgeir fánaberi á Evrópuleikunum

Ásgeir Sigurgeirsson keppir í skotfimi á Evrópuleikunum í Hvíta-Rússlandi.
Ásgeir Sigurgeirsson keppir í skotfimi á Evrópuleikunum í Hvíta-Rússlandi. Ljósmynd/ÍSÍ

Ásgeir Sigurgeirsson keppandi í skotfimi verður fánaberi íslenska hópsins á setningarhátíð Evrópuleikanna sem fram fer á Dinamo-leikvanginum í Minsk í Hvíta-Rússlandi á morgun. Ásgeir er fæddur 2. september 1985 og er því á 34. aldursári.

Hans keppnisgrein á leikunum er 10m loftskammbyssukeppnin en Ásgeir keppti í henni á fyrstu Evrópuleikunum í Bakú 2015 og lauk þar keppni í 22. sæti. Á þeim leikum keppti Ásgeir einnig í frjálsri skammbyssu og náði þar bestum árangri Íslendinga á leikunum er hann komst í úrslit og endaði í 5. sæti.

Ásgeir keppti á Ólympíuleikunum í London 2012, í þessum tveimur skammbyssugreinum og hefur staðið sig vel á erlendum vettvangi á undanförnum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert