Dagný Huld setti Íslandsmet

Dagný Huld Hinriksdóttir setti Íslandsmet.
Dagný Huld Hinriksdóttir setti Íslandsmet. Ljósmynd/GKG

Á Reykjavik Open í haglabyssugreininni Skeet féll eitt Íslandsmet og annað var jafnað. Dagný Huld Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur bætti fyrra met um eitt stig og endaði með 44 stig (88).

Hún sigraði í B-keppninni, annar varð Vignir Jón Vignisson með 39 stig (84) og í þriðja sæti Þórey Inga Helgadóttir með 30 stig (91) en hún varð jafnframt Reykjavíkurmeistari 2019 með árangri sínum í undankeppninni.

Þau keppa öll fyrir Skotfélag Reykjavíkur. Pétur T. Gunnarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur jafnaði Íslandsmetið í undankeppninni með því að ná 121 stigi af 125 mögulegum. Sá árangur tryggði honum Reykjavíkurmeistaratitil karla.

Hann hafnaði að lokum í öðru sæti í úrslitum með 53 stig en Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar sigraði með 54 stig (115) og Örn Valdimarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur varð þriðji með 42 stig (110).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert