Engir Íslandsmeistarar karla 2020

Frá leik SR og SA í vetur.
Frá leik SR og SA í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Íshokkísambands Íslands hefur tekið þá ákvörðun að ekki verið keppt frekar á Íslandsmótinu 2019 - 2020. 

Frekari keppni hefur verið aflýst og engir Íslandsmeistarar verða krýndir í meistaraflokki karla. Skautafélag Akureyrar hafnaði í efsta sæti deildarinnar og fær keppnisrétt í Evrópukeppni á næsta tímabili en liðið átti eftir að mæta Fjölni í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.

Skautafélag Akureyrar hafði þegar tryggt sér sigurinn í kvennaflokki áður en kórónuveiran fór að láta á sér kræla hérlendis eða í byrjun febrúar. 

ÍHÍ tilkynnti um ákvörðun sína í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert