Hrafnkell, Þorlákur og Hólmfríður Íslandsmeistarar

Fjöldi skúta keppti á Íslandsmóti í kænusiglingum á föstudaginn og …
Fjöldi skúta keppti á Íslandsmóti í kænusiglingum á föstudaginn og í dag. Ljósmynd/Aðsend

Íslandsmót í siglingum kæna var haldið í gær og í dag. Alls voru 30 keppendur skráðir og keppt í þremur flokkum, þ.e. Optimist, Laser Radial og opnum flokki.

Alls voru sigldar átta umferðir; fjórar í gær og fjórar í dag, laugardag. Siglt var í Fossvogi og Skerjafirði og voru aðstæður eins og best varð á kosið.

Í flokki Optimist urðu úrslit þau að Högni Halldórsson varð í 3. sæti, Ólafur Áki Kjartansson í 2. sæti en Hrafnkell Stefán Hannesson varð Íslandsmeistari. Þeir keppa allir fyrir Siglingafélag Reykjavíkur,  Brokey.

Í Optimist flokki varð (f.v.) Hrafnkell Stefán Hannesson, Íslandsmeistari, Ólafur …
Í Optimist flokki varð (f.v.) Hrafnkell Stefán Hannesson, Íslandsmeistari, Ólafur Áki Kjartansson í 2. sæti og Högni Halldórsson í 3. sæti. Ljósmynd/Aðsend

Í flokki Laser Radial varð Tara Ósk Markúsdóttir, Þyt í Hafnarfirði, í 3. sæti, Ísabella Sól Tryggvadóttir, Nökkva Akureyri, í 2. sæti en Íslandsmeistari varð Þorlákur Sigurðsson, einnig úr Nökkva frá Akureyri.

Í flokki Laser Radial varð (f.v.) Þorlákur Sigurðsson úr Nökkva …
Í flokki Laser Radial varð (f.v.) Þorlákur Sigurðsson úr Nökkva Íslandsmeistari, Ísabella Sól Tryggvadóttir úr Nökkva varð í 2. sæti og Tara Ósk Markúsdóttir í Þyt í 3. sæti. Ljósmynd/Aðsend

Úrslit í opna flokknum urðu þau að Aðalsteinn Jens Loftsson frá Ými í Kópavogi varð í 3. sæti, Árni Friðrik Guðmundsson úr Brokey í 2. sæti en Íslandsmeistari í opnum flokki varð Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir, einnig úr Brokey.

Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir í Brokey varð Íslandsmeistari, Árni Friðrik Guðmundsson …
Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir í Brokey varð Íslandsmeistari, Árni Friðrik Guðmundsson úr Brokey varð í 2. sæti og Aðalsteinn Jens Loftsson frá Ými í 3. sæti. Ljósmynd/Aðsend

Þess má geta að Hólmfríður, sem vann opna flokkinn, og Hrafnkell, sem sigraði í Optimist-flokknum, eru systkinabörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert