Án taps eftir fyrstu tíu leikina

Ben Roethlisberger leikstjórnandi Pittsburgh Steelers og Mike Tomlin þjálfari eru …
Ben Roethlisberger leikstjórnandi Pittsburgh Steelers og Mike Tomlin þjálfari eru að gera góða hluti í vetur. Ekki sést reyndar mikið í Tomlin vegna sóttvarnaráðstafana sem hann gerir á hliðarlínunni. AFP

Lið Pittsburgh Steelers hefur komið á óvart í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum sem af er vetri. Hefur liðið unnið fyrstu tíu leikina og er eina taplausa liðið. 

Pittsburgh átti auðveldan leik í þessari umferð og rótburstaði Jacksonville 27:3. Umferðinni lauk í nótt þegar Tom Brady og liðsfélagar í Tampa Bay Buccaneers töpuðu 27:24 fyrir LA Rams eftir spennuleik. Tampa Bay hefur unnið sex af fyrstu tíu leikjunum en Rams sjö. 

Tvö af betri liðum deildarinnar í vetur mættust þegar Tennessee Titans vann Baltimore Ravens 30:24. Tennessee hefur unnið sjö leiki en Baltimore sex og hefur liðið tapað tveimur leikjum í röð. 

Meistararnir í Kansas City Chiefs eru sannfærandi og eru með næstbesta árangurinn til þessa. Liðið hefur aðeins tapað einum leik og hafði betur gegn Las Vegas 35:31. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert