Meistararnir vörðu bikartitlana

Gerpla er bikarmeistari í karlaflokki.
Gerpla er bikarmeistari í karlaflokki. Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands

Bikarmót í frjálsum æfingum í áhaldafimleikum fór fram í dag eftir eins árs hlé. Meðal annars var keppt í frjálsum æfingum í bæði kvenna- og karlaflokki og fór mótið fram í fimleikahúsi Gerplu.

Keppendur komu frá Ármanni, Björk, Fimak, Fjölni, Gerplu og Gróttu. Ríkjandi meistarar í bæði karla- og kvennaflokknum náðu að verja sinn titil.

Eftir spennandi keppni í kvennaflokki stóð lið Bjarkar uppi sem sigurvegari með 134,600 stig og sigraði lið Gerplu með 4,850 stiga mun.

Gerpla A vann öruggan sigur í karlaflokki með 226,129 stig en í öðru sæti urðu liðsfélagar þeirra í Gerplu B sem hlutu 194,962 stig.

Valgarð Reinhardsson úr Gerplu varð stigahæstur í karlaflokki en hann hlaut 75,432 stig. Hildur Maja Guðmundsdóttir úr Gerplu varð stigahæst í kvennaflokki og hlaut 44,200 stig.

Kvennalið FIMAK keppti í fyrsta skipti í sögu félagsins sem lið í frjálsum æfingum.

Björk er bikarmeistari í kvennaflokki.
Björk er bikarmeistari í kvennaflokki. Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert