Sló 31 ára gamalt heimsmet

Ryan Crouser stoltur af nýja heimsmetinu.
Ryan Crouser stoltur af nýja heimsmetinu. AFP

Bandaríkjamaðurinn Ryan Crouser sló í gær 31 árs gamalt heimsmet í kúluvarpi utanhúss er hann varpaði kúlunni 23,37 metra á bandaríska úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana í Tókýó í sumar. 

Randy Barnes varpaði kúlu 23,12 metra árið 1990 og stóð metið þar til nú, en það var eitt elsta heimsmetið í frjálsíþróttum. 

Crouser, sem er ríkjandi ólympíumeistari, er mjög sigurstranglegur á Ólympíuleikunum sem hefjast í næsta mánuði. 

Kastið má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert