Fjallahjólamótið Morgunblaðshringurinn fer fram mánudaginn 9. ágúst og er skráning keppenda til leiks enn í fullum gangi.
Hjólað verður á svæðinu við Rauðavatn, Hádegishæð og Paradísardal þar sem er ágæt blanda af stuttum en bröttum brekkum og beinni köflum.
Keppni hefst og lýkur við skrifstofur Morgunblaðsins og mbl.is og býður Morgunblaðið upp á léttar veitingar að keppni lokinni.
Fjöldi keppnisflokka er í boði: Elite-flokkur, Junior-flokkur, U23-flokkur, U17-flokkur, U15-flokkur, U13-flokkur, Meistaraflokkur og Almenningsflokkur.
Nánari upplýsingar og skráning