Topplið KA fór létt með Völsung

Úr leik kvöldsins á Húsavík.
Úr leik kvöldsins á Húsavík. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

Völsungar tók á móti grönnum sínum í KA í úrvalsdeild kvenna í blaki á Húsavík í kvöld.  Akureyringar voru ekki í miklum vandræðum með Húsvíkinga og unnu nokkuð auðveldlega, 25:16, 25:16 og 25:19, eða 3:0.

Það var aðeins í fyrstu hrinu sem heimastúlkur stóðu aðeins í gestunum og leiddu hrinuna uppí 13:13 en þá fór Tea Andric í uppgjöf og KA skoraði 5 stig í röð. Þá var eins Völsungar misstu sjálfstraustið og lítið gekk eftir það og KA vann örugglega.

Í næstu tveimur hrinum var það sama upp á teningnum. KA landaði sigri nokkuð örugglega þó svo að Völsungar næðu aðeins að rétta úr kútnum í lok þriðju hrinu.

Stigahæstar í liði Völsungs voru Ky Hunt með 10 stig og Heiðdís Edda með 8
Í liði KA fór Tea Andric fyrir sínu liði með 17 stig og Paula Del Olmo með 12 stig

Eftir leiki kvöldsins trónir KA eitt á toppnum með 33 stig eftir 12 leiki, 3 stigum á undan Aftureldingu sem á leik til góða en Völsungar eru í 6. og næstneðsta sæti með 8 stig einnig eftir 13 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka