Sjöundi sigurinn í röð var stórsigur

Stefán Númi, lengst til vinstri, býr sig undir átök.
Stefán Númi, lengst til vinstri, býr sig undir átök. Ljósmynd/Berlin Adler

Stefán Númi Stefánsson og liðsfélagar hans í þýska ruðningsliðinu Potsdam Royals eru enn með fullt hús stiga á toppi norðurhluta efstu deildar þar í landi eftir 50:24-heimasigur á Köln Crocodiles í gær.

Potsdam-liðið hefur farið afar vel af stað í deildinni og unnið alla sjö leiki sína, skorað 364 stig og fengið á sig 198. Stefán leikur sem sóknarlínumaður og er hans hlutverk á vellinum að vernda leikstjórnanda síns liðs.  

Deildinni er skipti í norður- og suðurhluta og fara fjögur efstu lið hvors hluta í átta liða úrslit, þar sem keppt er um þýska meistaratitilinn.

Með sigrinum í gær náði Potsdam fjögurra stiga forskoti á toppi norðurhlutans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert