Sóknarprestur sigraði á fjallahjólamóti

Keppnin fór fram við Skíðaskálann í Hveradölum í gær.
Keppnin fór fram við Skíðaskálann í Hveradölum í gær. Ljósmynd/Mummi Lú

Pétur Vilhelm kom fyrstur í mark í karlaflokki og Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur á Selfossi, í kvennaflokki í fjallhjólreiðakeppninni Landsnet MTB.


Keppnin fór fram við Skíðaskálann í Hveradölum í gær í blíðskaparveðri. Mótið er eitt fjögurra í Víkingamótaröðinni. Næstu helgi fer utanvegahlaupið NOW Eldslóðin fram og laugardaginn 10. september verður hjólreiðakeppnin KIA Gullhringurinn haldin. 

Pétur Vilhelm kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 1:04:29 og Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur á Selfossi sigraði kvennaflokkinn á tímanum 01:34:08.

Guðbjörg sigraði í kvennaflokki.
Guðbjörg sigraði í kvennaflokki. Ljósmynd/Magnús Stefán.

Einnig boðið upp á rafhjólaflokk

Einnig var boðið upp á rafhjólaflokk en það var Dagný Pétursdóttir sem bar þar sigur úr býtum á tímanum 01:09:04. Jafnframt var ræst í skemmtiflokk þar sem þátttakendur hjóluðu eingöngu sér til skemmtunar en ekki í keppni við klukkuna. 

Brautin lá frá Skíðaskálanum upp á Hengilssvæðið, þaðan inn á þúsund vatna leiðina þar sem þátttakendur hjóla í árfarvegi Hengladalaár inn að Smjörþýfi, þaðan að þjóðvegi númer 1 og undir hann í gegnum ræsi að gamla þjóðveginum sem þá er hjólaður í hávestur að Skíðaskálanum aftur. 

Pétur sigraði í karlaflokki.
Pétur sigraði í karlaflokki. Ljósmynd/Mummi Lú

Efstu þrír í karlaflokki:
1. Pétur Wilhelm 01:04:29
2. Jón Arnar Tracey Sigurjónsson 01:06:33
3. Brynjar Logi Friðriksson 01:07:37

Efstu þrjár í kvennaflokki:
1. Guðbjörg Arnardóttir 01:34:08 
2. Hanna Ýr Sigþórsdóttir 01:35:47
3. Anna Linda Sigurgeirsdóttir 01:36:25 

Öll úrslitin má finna hér: https://timataka.net/landsnet2022/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert