58 ára Tyson snýr aftur

Mike Tyson er 58 ára.
Mike Tyson er 58 ára. AFP

Mike Tyson, fyrrverandi heimsmeistari í hnefaleikum, snýr aftur í hringinn í sumar er hann berst við YouTube-stjörnuna Logan Paul í Arlington í Texas 20. júlí.

Fer bardaginn fram á heimavelli ruðningsliðsins Dallas Cowboys sem leikur í NFL-deildinni en leikvangurinn rúmar 80.000 manns.

Tyson er orðinn 58 ára gamall en hann lætur ekki aldurinn stöðva sig gegn Paul, sem er 30 árum yngri.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert