NFL goðsögnin Brett Favre er með Parkinson sjúkdóminn. Hinn 54 ára gamli Favre greindi frá því í gærkvöldi en hann sætir rannsókn vegna fjárdrátts.
Favre hefur tjáð sig um fjölda heilahristinga sem hann varð fyrir á ferlinum en hann taldi þá skipta þúsundum. Líkurnar á að fá Parkinson sjúkdóminn eru taldar aukast um 57% fái einstaklingur heilahristing samkvæmt rannsókn frá árinu 2020.
Leikstjórnandinn sætir rannsókn þar sem hann er talinn hafa beint almannafé í eigin vasa í gegnum pólítísk sambönd sín í Mississippi fylki. Rúmlega milljón dollararar sem hafi átt að styrkja fjölskyldur í neyð hafi Favre dregið til sín.
Favre lék amerískan fótbolta í 20 ára í NFL deildinni er talinn einn sá besti í sinni stöðu. Hann var valinn besti leikmaður deildarinnar í þrígang og er í frægðarhöll deildarinnar.