Félagskiptamógúllinn Fabrizio Romano segir frágengið að Wojciech Szczesny gangi til liðs við Barcelona. Honum er ætlað að fylla skarð Marc-André Ter Stegen sem meiddist illa á dögunum.
Pólverjinn lagði skóna á hilluna í sumar eftir EM en hann hefur leikið fyrir Arsenal, Roma og Juventus á ferlinum meðal annars.
Szczesny mun skrifa undir eins árs samning við Katalóníuliðið.
🚨🔵🔴 Wojciech Szczesny to Barcelona, here we go! Deal in place for Polish goalkeeper to join as free agent.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) September 25, 2024
Szczesny will come out of retirement to sign for Barça and replace ter Stegen on one year contract.
↪️🇵🇱 Medical tests will take place in Spain in the next days. pic.twitter.com/FClO42e6Qg