Skanderborg sigraði Grindsted, 32:21, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Var um annan sigur Skanderborg í fjórum leikjum á tímabilinu að ræða.
Kristján Örn Kristjánsson átti sinn besta leik með Skanderborg til þessa því hann skoraði sex mörk. Hann hafði áður mest skorað fjögur mörk í einum leik með liðinu.
Landsliðsmaðurinn kom til Skanderborg frá Aix í Frakklandi fyrir tímabilið. Kristján og félagar eru í sjötta sæti með fjögur stig.