Fyrsti til að vera rekinn í 104 ár

Matt Eberflus.
Matt Eberflus. AFP/Quinn Harris

Matt Eberflus er fyrsti maðurinn til að vera rekinn sem þjálfari karlaliðs Chicago Bears í ruðningi Í 104 ára sögu félagsins. 

Eberflus var rekinn eftir sjötta tapið í röð í bandarísku NFL-deildinni en liðið er í neðsta sæti Norðurriðilsins með fjóra sigra og átta töp. 

Chicago Bears, sem var stofnað árið 1920, hefur aldrei áður rekið þjálfara á meðan að tímabil er enn í gangi. Hann hafði þjálfað liðið í þrjú tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka