Tiger fer vel af stað

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods fer vel af stað á fyrsta hringnum á Arnold Palmer Invitational-mótinu í golfi sem hófst í dag.

Tiger, sem átta sinnum hefur borið sigur úr býtum á þessu móti, er búinn að leika sex holur og er á tveimur höggum undir pari, hann er í ráshópi með Jason Day og Hideki Matsuyama fyrstu tvo hringina á mótinu.

Tiger hafnaði í 2.-3. sæti á Valspar Championship-mótinu um síðustu helgi og náði þar sínum besta árangri á móti í PGA-mótaröðinni í langan tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert