Ólafía þarf að fara undir parið

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur leik áfram á LA open mótinu í Los Angeles á LPGA-mótaröðinni í dag. Hún þarf að fara undir parið í dag til að eiga möguleika á því að komast áfram og spila um helgina. 

Ólafía lék á 75 höggum í gær og er á fjórum yfir pari vallarins. Kylfingar gætu þurf að vera á höggi yfir pari samtals til að komast í gegnum niðurskurð keppenda eftir 36 holur. Svo er alla vega spáin fyrir annan hringinn. 

Ólafía þyrfti þá að leika á 68 höggum í dag og mögulega betur til að komast áfram. Hún náði sér á strik seinni part hringsins í gær og gæti því hæglega leikið vel í dag. Hún var samtals á tveimur undir pari á síðustu tíu holunum í gær en slæmt skor á fyrri níu holunum gerði henni erfitt fyirr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert