Valdís Þóra í 57. sæti

Valdís Þóra lék þriðja hringinn í dag.
Valdís Þóra lék þriðja hringinn í dag.

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir er í 57. sæti á Lalla Meryem-mótinu, sem er hluti af Evrópumótaröðinni, í Marokkó eftir þriðja hringinn í dag.

Valdís Þóra fór þriðja hringinn á 76 höggum, fjórum höggum yfir pari. Valdís Þóra fékk tíu pör, fjóra skolla og tvöfaldan skolla á 18. holu.

Fyrsti hringur Valdísar Þóru var jafnframt sá besti, en hún fór hann á 71 höggi, einu höggi undir pari. Hún fór annan hringinn á 79 höggum.

Fjórði og síðasti hringur Valdísar Þóru er á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert