Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni frá Akranesi lauk leik í 61. sæti á Lalla Meryem-mótinu, sem er hluti af Evrópumótaröðinni og haldið var í Marokkó.
Valdís Þóra lék á 80 höggum í dag á sínum fjórða hring og náði sér ekki almennilega á strik og var á átta höggum yfir pari í dag. Hringina fjóra lék hún á 71, 79, 76 og 80 höggum.