Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á Volvik-meistaramótinu í golfi sem fram fer í Michigan í Bandaríkjunum. Ólafía lék annan hringinn í dag á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast áfram.
Ólafía var í fínum málum þangað til þrjár holur voru eftir, en hún lék þær á fjórum höggum yfir pari, og fékk m.a þrefaldan skolla á áttundu holu sem skemmdi möguleika hennar á að komast áfram.
Ólafía lauk leik á samtals tveimur höggum yfir pari og í 80.-93. sæti.
Ólafía í Michigan 2. hringur | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 23:11 Textalýsing 9 - par Ólafía fær par á síðustu holunni og er úr leik. Þvílíkt svekkelsi. | |||
Augnablik — sæki gögn... |