Ólafía komin á fimm undir

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari á þriðja hring sínum á Meijer LPGA Classic for Simply Give-mót­inu í Grand Rapids í Michigan í dag. Hún er komin á samanlagt fimm högg undir parið.

Ólafía fékk sex fugla og fjóra skolla í dag og er hún sem stendur í 53.-61. sæti. Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku og Anna Norqvist eru efstar á 14 höggum undir pari. 

Fjórði og síðasti hringur mótsins er spilaður á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert