Valdís endaði í 5.-9. sæti í Tékklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í 5.-9. sæti á AXA-mótinu sem fram fer í Tékklandi. Mótið er hluti af LET Access-mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.

Valdís Þóra lék hringina þrjá á 73-67-70 eða 6 höggum undir pari. Sigurvegarinn Carmen Alonso frá Spáni sigraði á mótinu á samtals ellefu höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert