Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur byrjaði vel á Walmart-mótinu í Arkansas á LPGA-mótaröðinni í golfi í dag.
Ólafía lék á 69 höggum og er á tveimur höggum undir pari vallarins. Ólafía er í 29. sæti sem stendur og ljóst að hún á góða möguleika á því að komast í gegnum niðurskurð keppenda eftir morgundaginn þótt margar eigi eftir að skila inn skori í dag.
Ólafía hélt mistökum í lágmarki á hringnum og fékk aðeins einn skolla. Hún fékk þrjá fugla og fjórtán pör. Besti hringur dagsins til þessa er 64 högg.