Ólafía og Valdís verða saman í liði

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Fjórir íslenskir atvinnukylfingar verða á meðal keppenda á Evrópumóti í liðakeppni atvinnukylfinga sem fram fer á Gleneagles-vellinum í Skotlandi dagana 8.-12. ágúst.

Á sama tíma verður keppt um Evrópumeistaratitla í fjölmörgum íþróttagreinum í Glasgow og er golfmótið hluti af þeirri keppni. EM í hjólreiðum, fimleikum, róðri og þríþraut fer fram í Glasgow á þessum tíma einnig. Á sama tíma fer fram EM í frjálsíþróttum í Berlín.

Verðlaunaféð skiptist jafnt niður í karla- og kvennaflokki. Keppt er í liðakeppni í karla- og kvennaflokki og einnig verður leikin 18 holu keppni með blönduðum liðum.

Alls eru 16 þjóðir sem taka þátt og er hvert lið skipað tveimur leikmönnum. Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson verða saman í liði og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir verða saman í liði.

Keppnisfyrirkomulagið er holukeppni á milli liða sem eru skipuð tveimur leikmönnum. Alls eru 16 lið sem keppa og er þeim skipt upp í fjóra riðla. Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlinum og þar sem betra skor hjá liðinu telur á hverri holu (fjórbolti/fourball). Tvö stig fást fyrir sigur í leik og eitt stig fyrir jafntefli. Efstu liðin úr hverjum riðli komast í undanúrslit.

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert