Birgir og Axel höfnuðu í öðru sæti

Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson.
Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson. Ljósmynd/Thomas Bojanowski

Birgir Leifur Hafþórsson og Axel Bóasson enduðu í öðru sæti á EM í liðakeppni atvinnukylfinga á Gleneagles-vellinum. Þeir töpuðu naumlega 2/0 í úrslitaleiknum gegn Spánverjunum Pedro Oriol og Scott Fernandez.

Úrslitin réðust ekki fyrr en á átjándu og síðustu holunni. Birgir Leifur og Axel fengu um 6,4 milljónir króna hvor í sinn hlut í verðlaunafé og Evrópumeistararnir fengu um 12,8 milljónir króna.

Birgir og Axel lönduðu þar með öðrum verðlaunum sínum á þessu móti. Í gær fögnuðu þeir Evrópumeistaratitlinum í keppni blandaðra liða með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert