GK og GM léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla á Garðavelli á Akranesi. Keilir hafði betur 3/2 og er þetta í fimmtánda sinn sem Keilir fagnar sigri í þessari keppni.
GK og GR léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna. GR sigraði 3/2 í úrslitaleiknum og var þetta fjórða árið í röð þar sem GR fagnar sigri og í 20. skipti alls sem GR vinnur þetta mótið. GK lagði GM í undanúrslitum og GR hafði betur gegn GKG.